fimmtudagur, 12. júní 2008

Alveg óvart hrundum við....

~~**~~

Jahá... Þá er fyrsta fylleríinu lokið frá aðgerð.... Það gekk líka svona ljómandi vel öhömm...
Thí hí það varð algjörlega alveg óvart ef svo má að orði komast. Okkur langaði svo í eitt rauðvínsglas vinkonunum og auðvitað var það látið eftir sér....en svo var bara aðeins haldið áfram. Báðar bara nánast á náttfötunum og ómálaðar og voða náttúrulega fallegar...:) En eru þetta ekki skemmtilegustu uppákomurnar sem eru svona óvæntar?? Það held ég nú..Í morgun var ekki alveg eins gaman þá tók við höfuðverkur og hungur og þorsti...ÆÆÆ já ég var alveg búin að glema þessum parti hann er ekki góður svo ég er að pæla í að láta þetta bara eiga sig í framtíðinni!!! HVERNIG LÍST YKKUR Á ÞAÐ VINIR MÍNIR!!!!jæja jæja við sjáum þá bara til. En núna ætlum við að fara að fara inní Lund og fá okkur að borða og leyfa krökkunum aðeins að njóta sín. Himmi var á skólaslitunum í morgun svo að við ætlum aðeins að halda upp á það. Mynirnar hér fyrir neðan eru frá partýinu okkar Gúu í gær.... Njótið en dæmið ekki, vinsamlega..
kv INGIBJÖRG ALKAHÓLISTI...:)


~~**~~




Hindin mín ....
mín sæl og glöð.....

vinirnir að leika......


Gúa og Úlrika í samræðum.....



Kram frá vinkonu.......




mín glaðari en orði fá lýst.....



Braut þetta blóm úr runna og gaf vinkonu minni....


sopið af guðaveigunum.....


Hindin mín að leika við köttinn lakkrís....



Lakkrís í góðu yfirlæti.....




mmmmm....hvað mér líður vel....




Hind að leika með dót sem hún keypti sér....




eitthvað að gretta sig.....



Daniel að fara að máta buxur fyrir mig sem ég keypti á trommarann.....



Dásamleg blóm í bleyti sem týnd voru í garðinum.......



Partur af útieldhúsinu þar sem við sitjum alla daga og höfum það notó....



.................




Tóti og Hind í góðum gír....




Í betri gír......


Voru í því að segja hvort öðru gátur.....





Vinkonurnar sjúkar í hvor aðra.....


Jamm kannski aðeins too much þarna.... :)




Enn ein gátan lögð fyrir....


Daniel svolgrari.. þetta átti að vera svo flott mynd og bunan átti að sjást...en hvar er hún??...




Mín rosa spennt að fá sér rauðvín....





mmmm.... so mysigt...( notalegt)



nei nei ... þau í gátuhugleiðingum aldrei þessu vant....



Þarna er Daniel nú bara með kaffi huh...


Ætti ég að láta henni það eftir að detta íða með henni... er hún að hugsa...




Himmi með morgunmatinn sinn fyrir framan tellíið..




Hindin mín með HELLO Kitty sleikjó ....sem hún varð að eignast....(Hello Kitty sjúk)


~~**~~

10 ummæli:

Sigga sagði...
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
Sigga sagði...

Það hefur greinilega ekki verið leiðinlegt hjá ykkur, var þetta fyrir eða eftir göngutúrinn blauta:) muhaha.

Knústu Tóta, Daníel, Hind, Hilmi og Lakkrís frá mér. Og skelltu svo einum blautum á Gúu, mér sýnist þið vera vanar tíhí.

syrrý sagði...

Sammála Siggu þetta hefur greinilega verðið skemmtilegt kvöld hjá ykkur. Er ekki annars alltaf skemmtilegt þegar þið tvær komið saman :-) Hafðu það gott í svíaríki.

Kveðja úr Kjósinni þar sem er glampandi sól og að sjálfsögðu hávaða rok úr öllum áttum.

Nafnlaus sagði...

Þið eruð sannar krúsindúllur,nú veit maður hvernig himnaríki lítur út
þetta er eitthvað annað en kvöldið
góða á Seyðis forðum
knús og(ekki blautir)kossar
Sigga fræ

Gusta sagði...

þið eruð æði láttu þér ekki detta í hug að hætta að detta í það þú ert nú með þeym skemmtilegri þegar þú ert í glasi svei þér að hugsa um það, mér finnst þú og Gúa orðnar bara líkar langleytar og sætar knús og kossar á ykkur öll kveðja Guðsteina

inga Heiddal sagði...

Sigga fræ...þetta var engin eftirbátur kvöldsins góða þarna um árið....bara gaman en í þetta skipti ældi engin um nóttina eða daginn eftir :)....hí hí kv INGA

Nafnlaus sagði...

Það er eingin eins og þú
sem betur fer
Sigga fræ

Hanna sagði...

Skál, stelpur mínar og ég veit að það er sko ekki leiðinlegt hjá ykkur, kveðja frá Elliheimilinu.

Nafnlaus sagði...

alltaf eins Þið tvær hressar og kátar eis og í gamladaga

Nafnlaus sagði...

hér er nið sem vantaði áðan
FG