laugardagur, 31. desember 2011

Gleðilegt nýtt ár!!!

~~**~~

Langaði bara að óska ykkur gleðilegs nýs árs og vona að þið eigið gott og skemmtilegt ár. Ég ætla að fagna áramótunum í faðmi tengdafólks og allri þeirri flóru þar sem sprengjugleðin er við völd, Mikið borðað,drukkið,spjallað og spaugað... Vonandi verður það eins hjá ykkur að allir hafi einhvern til að kyssa og knúsa klukkan tólf. Það eru margir sem ég vildi kyssa og knúsa sem ekki eru hjá mér en þeir fá auka knús þegar ég hitta þá næst..;)

Knús og kremja á ykkur Ingibjörg áramótabarn!!!

~~**~~




Hallgrímskirkja skartar sínu fegursta!



Svo er alltaf næs að skála kl 24:00



Í Reykjavík!!





Koma svo allir að setja stút á munninn!!!



Brjálað fjör!!


laugardagur, 24. desember 2011

Gleðileg jól

Fallegi fjörðurinn minn(fengið lánað hjá Ómari Boga)


~~**~~


Góðan dag þennan hvassa aðfangadag. Langaði bara svona að óska bloggheiminum gleðilegra jóla og gæfuríks nýs árs. Setti hér inn nokkrar myndir af hinun og þessu og vona að þið hafið það gott um jólin.



Kær kveðja til ykkar allra. Inga


~~**~~



Systurnar á jólunum fyrir svoooo mörgum árum!!



~~**~~



Jólahárið á húsmóðurinni.

~~**~~



Hinir íslensku jólasveinar á jólaballi í grunnskóla VM
~~**~~




Litli kútalingurinn hann Friðrik frændi minn áður en hann fór að sofa í gærkvöldi



~~**~~

laugardagur, 17. desember 2011

Síðasta helgi fyrir jól.. Og ég hef ekkert að gera..;)

~~**~~



Góðan daginn.. Fallegur dagur í dag og ég ætla að skreppa í jólabúðaleiðangur til að fá smá fýling með Önnu Lilju vinkonu. Ég er satt að segja að bíða eftir jólunum er bara hreinlega búin með allt og hef bara ekkert að gera... Ef ég ætti nóg af peningum þá myndi ég samt fara og kaupa aðeins meira af bara einhverju... hahaha. Maður er náttlega ekki í lagi Enda hafa foreldrar mínir alltaf sagt að meira jólabarn væri ekki til en ég. Ég hefði grenjað eins og ljón af spenningi fyrir jólin, grenjaði svo af óþolinmæði eftir pökkunum og skyldi bara ekki af hverju þyrfti endilega að vaska upp á aðfangadagskvöld. Svo þegar búið var að taka upp alla pakka þá grenjaði ég yfir því að allt væri búið. Sama var þetta með gamlaárskvöld þá grenjaði ég stanslaust þangað til var búið að sprengja allt og þá grenjaði ég enn meira yfir að allt væri búið!!! Trommarinn minn var svipaður þegar hann var lítill og þá sérstaklega yfir sprengjunum en Hindin mín er svo róleg yfir þessu öllu saman að ég varð óðolinmóð þegar tók hana of langan tíma að taka upp pakkanan... Maður er náttúrulega ekki í lagi...Nú er eftir einn vinnudagur í skólanum og svo litlu jólin. Mér finnast þau alltaf svo hátíðleg að ég er strax komin með tár á hvarm yfir tillhlökkun að sjá öll stilltu og fínu börnin mín!! Í gær var ég með smá hárgreiðsluþema og tók með mér FULLT af litlum teygjum og var að dúllast í stelpunum mínum í öðrum bekk. þær fóru allar sem vildu nýja hárgreiðslu alsælar heim. Ein sagði við mig að mamma hennar væri svo glöð yfir því að ég væri alltaf að gera hana fína því hún væri svo hársár að það mætti aldrei koma við hárið á henni. Ég sagði þá " En ertu ekki hársá þegar ég er að gera við hárið á þér?? Hún sagði jú jú en ég bara þori ekki að segja Áiii við þig. hahahaha samt biður hún mig alltaf aftur og aftur að gera sig fína...Trommarinn minn flaug austur á bóginn í gær og ætlar að eyða jólum og áramótum hjá ömmu sinni og afa.. Það er fallega gert af honum þó ég sakni þess að hafa hann ekki hér. Hann missir líka af ólympíuleikum fjölskyldunar í vii tölvunni á aðfangadagskvöld..Þá er Hindin mín að koma heim í kvöld en hún er búin að vera í góðu yfirlæti hjá Sigurrós vinkonu núna í 3 daga og þær búnar að skanna jólin í búðunum í Rvk. það verður gott að fá hana heim. En jæja það er best að hætta þessu röfli fram og til baka og láta jólin flæða um æðar sér. Ég sendi ykkur jóla knús og kossa inn í helgarrestina og lýk hér með þessari bloggfærslu með nokkrum jólajóla myndum af herlegheitunum á heimilinu. Bless. Inga englabarn.


~~**~~




Hindin mín skreytti t´reð að þessu sinni og er það með marglitum ljósum í fyrsta skipti!!

Mjög flott hjá henni!




Smá jóló á stofuborðinu!



Þessi er u.þ.b 100 ára en hún Björg langaamma mín átti hann og mér þykir svooo vænt um hann!



Fallegur og gamall



Alltaf að bæta smá við af dúlleríi..




gerði þennan bakka fínan þegar ég fann ekkert annað til að gera..




....




Möndlur greni og fl...


~~*~~


fimmtudagur, 8. desember 2011

Afmæli,snjór og jóló!!

~~**~~

Friðrik litli frændinn minn!!!


Gústi bro og Frikki litli!!



Nokkrar úr afmæli Sigurrósar vinkonu!!

~~**~~



Við vinkonurnar..





Ábúðalegir með glott á vör Björgvin og Gísli..




Bogga vinkona, Addý frænka hennar og Rúna tóku lagið í afmælinu!!




Fíflagangurinn...




í okkur!!!...:D



~~**~~

Góðan dag



Brrrr... Hann er kaldur núna. Eins gott maður á þak yfir höfuðið og nóg af hita og kertum.. Gekk til vinnu í morgun þar sem ófærðin var mikil og komst ég ekki á mínum eðalvagni til vinnu. Ég átti fullt í fangi með að vera ekki keyrð niður á leiðinni því þeir eru svo miklir snillingar hér í mokstrinum að þeir ryðja öllum snjó upp á gangstéttar hér.. Þykir sjálfsagt hentugt ég veit það ekki. En ég komst heil á húfi og það var gaman að koma til vinnu þar sem föndurdagur var og allir í sínu fínasta jólaskapi... Nema kannski 10. bekkingar sem áttu að hjálpa til og fannst það frekar halló..;) En maður spaugaði bara við þau og innan tíðar voru þau allavega komin í skap!!!


Við hjónakornin fórum til Rvk um síðustu helgi í afmæli til Sigurrósar vinkonu og var það heljarinnar fjör Mikið borðað, mikið hlegið, mikið drukkið og þar fram eftir götunum. Ég er svo heppin að vera með " einkadriver" og þurfti því engar áhyggjur að hafa að leigubílum sem ekki voru til staðar þar sem flestir leigubílstjórar á höfuðborgarsvæðinu voru í afmælinu...:=) Við hittum momms og pomms í borginni líka og dró ég móður mína um allt í leit að jólagjöfum handa öllum það tók ekki langan tíma þar sem ég týndi í kjellu allt sem fyrir varð hún borgaði svo þegjandi og hljóðalaust. Á laugardeginum fórum ég og hann mjói minn svo og keyptum jólagjafirnar sem okkur vantaði en hann var mestmegnis með skrýtin svip fyrir utan allar búðirnar og hélt svo á pokunum fyrir sína. Fórum að hitta lille bro og hans familí , vorum boðin þangað í mat og gerði ég að sjálfsögðu litla frænda minn snarvitlausann áður en ég fór foreldrunum til mikillar armæðu. Mér leiðist það ekkert. Á sunnudaginn fórum við svo í smá snatt og enduðum svo í Hveragerði hjá fræinu mínu og hennar ektamanni. Þar beið okkar dýrindis jólakaffi og meððí. Gott var að komast heim svo um kvöldið þar sem Hindin mín var búin að súkkulaðihjúpa jarðaber og næs fyrir okkur og baka brauðstangir. Hún er framtíðarkokkur og sælkeri þetta barn Veit ekki alveg hvort ég á að lasta það eða fagna því...:)


En jæja hér eru nokkrar myndir af punteríi og ofurlitlum snjó.


Heilsur í bili.
Ingibjörg englakroppur!




~~**~~







Svona leit þetta nú út áðan.. Fallegt ef maður er bara innandyra..;)



Þetta voru cýbrusar..:(





Yasmin skyldi bara ekkert í af hverju henni var hent út til að pissa í þessari færð..




Sigga fræ í Hveró gaf mér þessa flottu tölustafi svo ég væri með á hreinu nr hvað hvert kerti væri..;)



Hýjasinturnar farnar að gægjast.






Flottir og jólalegir gluggarnir með frosti og fönn




......



fékk þessa líka fínu skreytingu frá leynivini en skipti um kerti að vísu á henni svo ég gæti talið dagana til jóla!!





Önnur hýjasintuskreyting sem ég gerði og þar er líka farið að gægjast aðeins.




Fékk þessi flottu hjörtu einnig frá leynivini mínum og að auki fékk ég enska jólaköku og rommpela til að vökva hana með en á enga mynd af henni...:)




Kósýheitin í fyrirrúmi!!






Alltaf er ég jafn hrifin af þessum sætu kortum sem Sigga sys gerði handa mér og hanga nokkur, ár eftir ár uppi hjá mér á snúru!


~~**~~