laugardagur, 26. janúar 2013

Árið 2013 með nýjum áherslum

Góða kvöldið gott fólk. Kolvitlaust rok úti og stórhöfði u.þ.b að slá met í lægð... Ég hljóma kannski eins og þessar gömlu í torfkofunum en ég finn á gigtinni og geðheilsunni að það er kröpp lægð hér akkúrat núna. Langt síðan ég leit hér inn síðast og margt á daga mína drifið síðan. Fór með stórfjölskyldunni í svo skemmtilega ferð til Florida yfir áramót og fram til 12. jan. Lifi lengi á þessari ferð sem gerði mér og minni fjölskyldu ekkert nema gott. En nú er alvara lífsins tekin við og ég er  næstum því ósátt við það því ég gæti alveg vanist Florida um ókomna tíð. En þá er bara að fara að plana næstu ferð og leggja fyrir. Ekki að það sé einhver afgangur um mánaðarmót til þess í þessu skítaþjóðfélagi sem hér er. Maður verður aumur í afturendanum á því bara að hugsa um hvernig farið er með fólk hér peningalega séð og aðeins nokkrir einstaklingar í landinu virðast geta mjólkað og makað endalaust. Já ég segi það slétt og fellt ég hreinlega verslaði af mér og öðrum rassgatið í henni Ameríku. Það nær náttúrelega engri átt að skór sem börnin mín keyptu sér t.d Converse skór, að þau skyldu hafa geta fengið ferna fyrir eina hér og t.d Timberland skór sem eru svo vinsælir núna keyptu þau á 9000 þús en kosta hér 32.000. Mér verður illt. Levis gallabuxur skinnyfit keypti Hindin mín sér og þær kostuðu 3.500 úti hvað skyldu þær kosta hér... Ekki undir 17.000. Ég gæti haldið svona lengi áfram og fyrir utan náttlega að kaupa í matinn sem var náttlega bara grín!!! En að allt öðru Þá er þorrablót núna á Seyðisfirðinum mínum besta og ég ætti náttlega að vera þar en nennti ómögulega að ferðast þetta núna svona stuttu eftir Floridaferðina. En bara næst... he he segi þetta alltaf en það er að verða allt of langt síðan ég fór síðast. Svo er nú ferming framundan en einkadóttirin fermist þann 23. mars næstkomandi! ÞAð er og verður hausverkur því að hún er alveg með skoðanir á hlutunum... Erum bara búin að vera rúma viku að velja lit á boðskortið því það er ekki sko rétti fjólublái liturinn sem þarf að vera á þvi!!! Kíktum á servéttur í dag og ég hefði getað fengið þessar líka fínu servéttur (fjólubláar) á 30% afslætti en nei takk þær voru sko ekki nógu góðar og ekki nógu flottar og ekki rétti liturinn!!!=(/%&%$)(...:( EN jæja einn strák hef ég fermt og það gekk voða vel og einfalt all saman og hvað gerir það þá til þó að hún sé með smá vesen... Þetta var Pollyana að tala ekki ég!!!:..  :;)
Af mér er það að frétta að ég hef ekki drukkið brennivín,bjór eða léttvín í 3 mánuði akkúrat í dag. Húrra fyrir mér langar samt alveg í rauðvín öðru hverju en skítt með það geri þetta bara í ellinni... he he Og tók svo upp á því að hætta að reykja á síðasta miðvikudag. Hurmmfff... Langar það ekkert og langar í sígarettu t.d akkúrat núna en sjáum hvað setur ég byrja allavega um leið og ég bæti á mig einu kílói!!! Svo er þetta bara svo helvíti róandi og gott... Skamm segir einhver núna að ég skuli tala svona en so what, mín lungu og mitt líf er þakki!!!
Jæja röflríður hættu nú!... Þetta sem átti að vera svo skemmtilegt blogg...
 En bara næst þá! bæ í bili. Ingibjörg frá Gili

~~**~~

 Keypti mér þessa sætu límmiða úti í Ameríku
 Sem by the way kostuðu ekki annað nýrað eins og hér..
 Og handa Hindinni líka!
 voða sætir. Keypti svona líka til að gefa ..
Kostuðu minnir mig um 150 kr

 Bóndadagsblómin svo yndislega fallegir túlípanar.
 Rómó hjá okkur hjónum nú í kvöld. södd og sæl eiginlega ennþá síðan ég bauð honum út að borða hjá Einsa Kalda í gærkvöldi í tilefni bóndadags!!!

                

þriðjudagur, 27. nóvember 2012

Senn líður að jólum

Góðan dag gott fólk. Nokkur er langt síðan ég kíkti hingað inn. Nú er loksins komið að aðgerðinni minni eftir að vera búin að fara fýluferð einu sinni upp á land en sá 6.des varð fyrir valinu og er ég í framhaldi af því komin í jólafrí. Þá getur maður farið að huga að Floridaferðinni sem styttist æ í.
Lítið verður um jólaskreytingar á Fjólugötu 21 þetta árið en eitthvað þó. Ég nenni ekki að eiga eftir að týna allt niður þegar ég kem heim þann 12.jan.
En læt mig þó dreyma um hinar ýmsu skreytingar á netinu og dugir það mér í bili.
 Eigið góða viku. Kveðja Inga springa
~~**~~
 Er bara sátt við aðventukransinn minn þetta árið
 spurning samt að setja hann á langann disk til að hann njóti sín betur!
 Klippti síðan út ótal fiðrildi og límdi á vegg

 Bara sátt við það. Finnst það koma vel út
                                                                   svo ferlega sætt

                                            Fín hugmynd sem ég notfærði mér við aðventukransagerðina

                                            Sætir taupokar sem hægt er að nota sem jólaumbúðir
Að lokum sæt mynd af jólatré.
~~**~~

þriðjudagur, 23. október 2012

Ég á "Einari!"

Sælinú!!
 Kjellingin bara búin að vera hangandi heima núna í viku. Fór til Rvk í hnéaðgerð og er bara öll að koma til blæddi að vísu inn á liðinn þannig að ég er hálfstirð og hölt ennþá en það hlýtur að koma. Verð allavega að vera orðin nokkuð góð áður en ég fer í næstu aðgerð sem er áæluð þann 7. nóv..:) Svo skulum við vona að þetta verði orðið gott allavega á þessu ári... Svo gaman að Siggan hún syssin mín heimsótti mig í vetrarfríinu sínu og var hjá mér í þrjá daga. Stjanað við mann og borðað eins og við höfum aldrei smakkað mat áður. Sofnuðum kl 11 á kvöldin. Þetta segir manni það að maður er að verða komin af  allra léttasta skeiði... hahahahaha nei takk það var sko bara af því að ég var á "einari" Eins og venjulega þá gleymdist myndavélin á þessum dögum en það var heldur ekki sjón að sjá okkur, ótilhafðar og garmslegar... Nema þegar við skruppum allra snöggvast út til að kaupa okkur nammi! Við mjói minn og ég vorum svo eftir aðgerðina boðin í mat til Gústa bro, þar sem ég var nú hálfgerður zombie eftir svæfinguna en gat þó tekið þessar myndir en man ekki mikið meira en það... Eða jú mér fannst góður maturinn og ætla að fá uppskriftina hjá másu minni ! Litla Amalía orðin svo mannaleg og er alveg sætust í heimi. Prakkaraskottið frændi minn var líka flottastur og fetti sig og bretti fyrir uppáhaldsfrænku sína á þessari mynd hér fyrir neðan.. thí hí! Það er ball með PALLA pung um næstu helgi og mig LANGAR en ekki á "einari" það er á hreinu það er ekki hægt að fara á ball með honum og geta ekki dansað almennilega...:( snökt... En jæja það koma önnur böll með honum( vonandi). Nú er ég hætt,  er að fara að sofa Heilsur til ykkar í bili.
 Góða nótt Ingibjörg og "einar"...:D

~~**~~


Litla Amalía


                          Snúllan hennar Ingu sín!
                                 Svo stór og falleg augu!
                         Gondólus maximus uppáhaldsfrændinn minn!!
                                   Ég á einari

                                                                  ~~**~~

miðvikudagur, 10. október 2012

miðvikudagur og lífið gengur sinn gang

Góða kvöldið . skemmtilegur dagur í dag í skólanum sem tengdist eineltisáætluninni  okkar þar sem skrifað var undir sáttmála þessu tengdu. Simmi og 
Jói heimsóttu okkur og börnin bjuggu til plakat sem þau fóru svo með í fyrirtæki og stofnanir og hengdu þar upp. Leiðindarveður á eyjunni, rigning með öllu tilheyrandi. Fór til bæklunarlæknis í gær og verð að fara  í aðgerðina til Rvk í næstu viku þar sem liðþófinn er illa farin og farin að skemma út frá sér. Já gamlan er að verða eldri og verr farin en aldur segir til um. Þá er um að gera að passa betur upp á sig. Ekkert meira hopp fyrir mig svo að zumba er úr sögunni. Göngur verður helsta hreyfingin mín ásamt sundi. Verð að fara að koma mér í þann gír! Þegar þetta er búið þá verða 3 vikur í næstu aðgerð. Þá verður legið fjarlægt. æ það
verður bara gott. Ekki ætla ég að eiga fleiri börn.. Það mætti halda að maður  væri eitthvað smeykur að flytja af eyjunni og væri að fara þaðan í pörtum... he he En að öllu gamni slepptu þá verður gott þegar þetta allt verðu búið. Þá getur maður virkilega farið að láta sér hlakka til Floridaferðarinnar.Keypti mér nýjar stofugardínur í haust og setti þær upp um daginn. Er bara nokkuð sátt við þær. Var orðin leið á blómakrúsindúllublúnduverkinu sem ég var með Myndir hér fyrir neðan af þeim. Einfaldar og flottar finnst mér. kveð að sinni er orðin sybbin. Góða nótt. Ingibjörg Angantýrs!!

~~**~~
 
                                                            sátt!!
                                                               

                                                                         við þær!!!
                                                                         
                                                                                   
                                                                            ;)
                                                                             

mánudagur, 1. október 2012

aðallega ekkert sko!

Já góða kvöldið. Mánudagur er það og ný vinnuvika hafin. Veðrið búið að vera gott og rólegt, sést vel til allra átta.  Svosem ekkert að frétta en alltaf gaman að röfla svolítið um ekki neitt. ÞAð styttist óðum í Orlando. Jamm gott fólk þar skal eyða Áramótunum með fjöllunni allri, momms, pomms og allir fylgifiskar. Maður getur farið að láta síg hlakka til. Svona hvað að hverju. Tvær vikur í sól og sumri... Vonandi.!!! Er alltaf með hugann við húsið innandyra og er svona pínku að breyta og bæta lét td yfirdekkja þennan gamla stól sem var með bláu ullarefni á og setti hvítt leður og járnbólur. Allt annað að sjá hann og svo glöð meðann!!! Búin að setja upp nýjar gardínur í stofuna en er ekki með mynd af þeim núna geymi það þangað til næst. Annað er svosem ekki að frétta nema á von á að fara í litla hnéaðgerð í næstu viku, vonandi get ég farið í Zumba innan tíðar.. Sakna þess að geta ekki dansað þann tryllta dans.. Svo gaman.
 Ég bið að heilsa að sinni. Ingibjörg endurunna¨!

~~**~~



Flotti stóllinn minn!!! 

Fékk svo sæta leirplatta að gjöf frá vinkonum  yfir mig ánægð með þá!


Við mæðgurnar að leggja okkur... thí hí
~~**~~

laugardagur, 22. september 2012

Loksins nýtt!!

~~**~~

Jæja loksins er gamla pokahornið komið í lag og what a come back!!!! Fullt af myndum af litlu snúllunni hans Gústa bro og Ingu Bjarkar. Hún fæddist þann 15. sept og var tæplega 14 merkur og 49 cm. Og ömmugenið í mér gat ekki haft friðinn lengur svo ég brunaði til Reykjó í morgun til að knúsast í henni hún er svo yndislegust. Stóri bro svo flottur líka og þurfti sko alla athyglina hjá Ingu sín. Og að sjálfsögðu fékk hann hana! Skrapp svo aðeins í Smáralindina fyrir gelgjuna hana Hind sem þurfti svooo mikið að fá sitthvað þaðan. Brunaði síðan til baka í Landeyajhöfn og var komin  heim kl rúmlega hálfátta í kvöld með kvöldmatinn í plastpoka frá KFC á Selfossi!!..:) En jæja þetta verður með styðstu bloggum sögunnar. Kjellan rosa sybbin eftir að hafa þurft að vakna kl 6:30 í morgun og það á frídegi. það getur ekki verið í lagi með mann!. Knús á ykkur öll í bili and i´ll be back. Ings the pings.
~~**~~
 Litla músin sem nefnd hefur verið Amalía í höfuðið á móðurömmu sinni! fallegt!!!
 Friðrik og Amalía konungborin dönsk nöfn og má þess geta þá i leiðinni að langaamma mín hún Friðrikka Viktoría Magnúsína Jensen var einmitt dönsk!!!
 Sælar með hvor aðra!
 knús á mús!!
 Lúlla sér eftir góðan sopa hjá mömmu sín!!
 Friðrik stóri bro að elda handa frænku sinni!!!
 Hún er svo lítil Inga frænka að ég þarf að skoða hana með stækkunargleri!!!..;)
 Lúlla sér með sætt lítið uppbrett nef og rauðan lubba eins og stóri bróðir og mamma mín!!
 Sætilíusinn uppáhaldið mitt!!!
Sjáið sæta nebbann minn!!!
.................................................

laugardagur, 11. ágúst 2012

:(

Og ég sem ætlaði loksins að blogga eitthvað og þá er eitthvað bilað hér. Get ekki sett inn neinar myndir. Ég reyni aftur síðar!
 Kv INGA

miðvikudagur, 13. júní 2012

Sumarið inni og úti!

Góðan dag gott fólk. Júbb mín bara komin í sumarfrí hvílík dýrð. Búin að vera að skottast í garðinum í góða veðrinu og reyna að koma honum í lag. Nánast óvinnandi verk það..:(  En tókst þó að gera bærilega fínt hér upp á pallinum. Næst á dagskrá væri þá að gera fínt hér innandyra, Þarf svo mikið að fá spark með það. R'ifa niður gardínur og þvo já og fá mér ruslapoka og henda öllum óþarfa úr hverju horni. Langar að gera svo margt en verður minna úr verki. Ætla að fara austur á land upp úr næstu mánaðarmótum það er ekkert sumar ef ég geri það ekki. Ætla að eyða þar tveimur vikum. Eins gott að sumarið verði þar rétt á meðan.  En ég læt þetta duga í bili. Adios. Ingiríður Angantýrs
~~**~~
                                                 ~~**~~
                                                    ~~**~~

                                                                                                                                                               ~~**~~
                                                     ~~**~~
                                                    

                                                ~~**~~

                                             ~~**~~

                                           ~~**~~

                                                   ~~**~~

                                           ~~**~~
                                         ~~**~~

föstudagur, 1. júní 2012

Tónleikar með þeim allra flottasta

Við Sigga frænka mín fyrir tónleika!

                                                                        





Ég, Ágúst bróðir og Sigga fræ.
Á myndina vantar Sindra frænda!!

Gott kvöld. Það er nú meiri veðurblíðan sem búin er að leika við landanm síðustu viku. Ég gerði víðreist um hvítasunnuna og fór til Rvk í júróvisionparty og svo á tónleika með flottasta töffaranum í bransanum, sjálfum Bryan Ferry... OMG hvað hann var flottur, uppselt á tvenna tónleika í Hörpunni sem er by the way mjög flott. ég var á mjög góðum stað og náði þessum myndum af honum og parti úr tveimur lögum sem hér eru til hlustunar og yndisauka!!:.;)
 Nú eru fjórir dagar þangað til ég fer í sumarfrí í tæpa 3 mán.... Get ekki beðið!!! Bið að heilsa ykkur í bili um leið og ég óska öllum sjómönnum innilega til hamingju með daginn og helgina sem í vændum er!!!
 Inga Pinga.