miðvikudagur, 17. september 2008

Hæ Pollýana hér!!!!!

~~**~~
Komiði sæl!! Pollýana hérna. Hvað er að frétta. Ég er hér með bros á vör alla daga yfir framkvæmdunum mínum... (not).. En það er þó farið að setja aðeins af innréttingunni upp. Hringdi svo í skítafyrirtækið Íkea í fyrradag því mig vantar enn vaskinn og eina borðplötu. OG viti menn það eru enn 2-4 vikur í það !!!!Fjandans fyrirtæki!! En ég er samt alveg róleg og með bros á vör.... :( .....Að allt öðru, ég er að fara að djamma á föstudaginn með stuðningsfulltrúum . Ég hlakka til... Ætla að reyna að skilja beislið eftir heima og gera mér glaðan dag . Það verður ekki erfitt með þessar kellur innanborðs. Sýni ykkur vonandi vitleysisganginn í okkur í máli og myndum eftir helgi. Góða nótt í bili. Kveðja Pollýana...
~~**~~

Fæðingin byrjuð....
þessu fylgir nú ýmislegt......



Smá svona kósýheit verða að fylgja með.....







Tjingeling vinir mínir og eigið góðan morgundag í vændum.
~~**~~

3 ummæli:

Synnøve. sagði...

Sæl Inga.
Tack för din goa kommentar hos mig. Försöker lära och läsa. Ett ord i taget.
Så det kommer sig nog till slut ska du se.Ser att köket växer fram mer och mer. Kul. Ska bli skoj att se hur det ser ut när det är färdigt.
Ha nu en flott torsdag vännen.
Kramen Synne.

Hanna sagði...

Sæl Inga mín, gaman að fylgjast með eldhúsbreytingunum, kveðjur úr borg óttans.

Sigga sagði...

Er á nákvæmlega sama stað og þú nema það er baðherbergið. Mitt lítur einmitt svona út núna.

Ég fékk soldinn jólafíling yfir kósýmyndunum (fékk gæsahúð núna veit ekki afhverju)

Knús sys