laugardagur, 22. september 2012

Loksins nýtt!!

~~**~~

Jæja loksins er gamla pokahornið komið í lag og what a come back!!!! Fullt af myndum af litlu snúllunni hans Gústa bro og Ingu Bjarkar. Hún fæddist þann 15. sept og var tæplega 14 merkur og 49 cm. Og ömmugenið í mér gat ekki haft friðinn lengur svo ég brunaði til Reykjó í morgun til að knúsast í henni hún er svo yndislegust. Stóri bro svo flottur líka og þurfti sko alla athyglina hjá Ingu sín. Og að sjálfsögðu fékk hann hana! Skrapp svo aðeins í Smáralindina fyrir gelgjuna hana Hind sem þurfti svooo mikið að fá sitthvað þaðan. Brunaði síðan til baka í Landeyajhöfn og var komin  heim kl rúmlega hálfátta í kvöld með kvöldmatinn í plastpoka frá KFC á Selfossi!!..:) En jæja þetta verður með styðstu bloggum sögunnar. Kjellan rosa sybbin eftir að hafa þurft að vakna kl 6:30 í morgun og það á frídegi. það getur ekki verið í lagi með mann!. Knús á ykkur öll í bili and i´ll be back. Ings the pings.
~~**~~
 Litla músin sem nefnd hefur verið Amalía í höfuðið á móðurömmu sinni! fallegt!!!
 Friðrik og Amalía konungborin dönsk nöfn og má þess geta þá i leiðinni að langaamma mín hún Friðrikka Viktoría Magnúsína Jensen var einmitt dönsk!!!
 Sælar með hvor aðra!
 knús á mús!!
 Lúlla sér eftir góðan sopa hjá mömmu sín!!
 Friðrik stóri bro að elda handa frænku sinni!!!
 Hún er svo lítil Inga frænka að ég þarf að skoða hana með stækkunargleri!!!..;)
 Lúlla sér með sætt lítið uppbrett nef og rauðan lubba eins og stóri bróðir og mamma mín!!
 Sætilíusinn uppáhaldið mitt!!!
Sjáið sæta nebbann minn!!!
.................................................

3 ummæli:

Gusta sagði...

omæ hvað þau eru miklar dúllur bæði tvö með sitt fallega rauða hár gaman að fá loksins blogg frá þér Inga mín knús og kossar frá Hafnarfirði

Nafnlaus sagði...

Jimundurinn minn hvað þetta eru falleg börn. Yndislegust !!!!!!

Kv. Anna Lilja

Nafnlaus sagði...

Ooohhh ....mig langar líka að sjá læf :(

Syss :)