~~**~~
Júbb það verður að segjast eins og er að ég er alltaf snemma í jólagírnum. En ég er bara ánægð með það.. Gæti alveg verið í þeim gírnum allt árið! Hentist í að baka 4 sortir í vikunni og gerði svo sörur áðan með Hindinni minni sem er svo dugleg þegar kemur að eldhúsverkunum... og þá sérstaklega bakstri og matargerð. Ætli þau systkini hafi það ekki frá mér þar sem mér finnst gaman að stússast í þessu og trommarinn ekki síður. Hann er snilldarkokkur. Mjói minn er ekki alveg eins áhugasamur hann getur jú sett kalt vatn í pott og hitað það...:)Lifandis ósköp og skelfing er ég ánægð alltaf þegar kemur helgi ég og virkir dagar eigum bara einhvernvegin ekki saman ég bara skil það ekki. Ætli það sé ekki þessi týbíska B manneskja sem blundar frekar fast í mér. Þyrfti svoooo mikið að vinna eftir hádegi en það er ekkert áhugavert þar í boði og þar að auki tými ég ekki að missa vinnuna sem ég er í þar sem mér líkar hún vel. Svo ætli ég verði ekki að hengslast þetta áfram og bíð með óþreyju eftir jólafríinu og svo páskafríinu og svo sumarfríinu... hahaha... En elskurnar ég setti hér inn nokkrar myndir af bakstrinum og óska ykkur góðrar helgar svona í nesti...
Góðar stundi.. Ingibjörg ofurlata til uppvöku!
~~**~~
2 ummæli:
Já kanski maður skelli sér bara í kaffi á Fjólugötu. En mikið svakalega ertu dugleg, ég hugsa BARA um ALLT sem ég ætla að gera.
Knús í hús Hveragerðisfræið :)
vertu velkomin elsku fræið mitt!!!
Skrifa ummæli