laugardagur, 22. janúar 2011

Minningarorð




Elsku besta Gústa mín er látin. Það er svo margt sem kemur upp í hugann þegar ég hugsa til baka. Þó fyrst og fremst allt það góða og skemmtilega. Aldrei hef ég kynnst konu eins og henni sem alltaf og þá meina ég alltaf sá góðu hliðarnar á öllu. Ég man að hún sagði einu sinni við mig: Inga mín það er alveg sama hversu dimmt verður í hugskoti manns það er alltaf ljós punktur þarna einhversstaðar maður verður bara að leita svolítið betur stundum. Það er svo sannarlega satt og hef ég hugsað þessi orð hennar þegar eitthvað bjátar á og haft þau að leiðarljósi. Á unglingsárunum átti maður athvarf hjá henni eins og fleira ungt fólk sem hópaðist í kringum börnin hennar og þá ekki bara til að vera innan um þau heldur líka til að geta notið návistar hennar. Það var ekki sjaldan sem fullt var út úr dyrum á Túngötu 17 og þá stóð hún með hækjuna sína eða studdi olnbogunum á bekkinn hitandi kaffi og berandi á borð kleinurnar, lét mann svo heyra það óþvegið ef henni fannst eitthvað vera eins og það ekki átti að vera. Ég hélt satt að segja að þú myndir verða hundrað ára Gústa mín þú varst eiginlega búin að lofa því. En nú er komið að skilnaðarstund og ég er miður mín, en ylja mér þó, (með pínulítið bros á vör) við allar góðu minningarnar sem ég á um þig og hversu góð og dugleg þú varst. Það er leitun að annari eins konu og þér. Ég bið alla heimsins engla að vaka yfir þér og veit að þú ert ekki ósátt við þitt hlutskipti núna.
Hvíldu í friði elsku Gústa mín!!!


~~**~~







föstudagur, 14. janúar 2011

Gleðilegt ár og allt það

Mynd tekin yfir Seyðisfjörð á áramótunum

~~**~~
Gott kvöld og Gleðilegt ár... Það er víst komið 2011. Maður þarf að hugsa sig um áður en maður skrifar það... Pínuflókið finnst mér. Ég er allavega búin að þurfa að strika yfir vitleysurnar nokkum sinnum... Ég ætla að vona að þetta ár verði upphaf af mörgum skemmtilegum hlutum. Þegar ég fer í huganum yfir síðasta ár þá var það bara nokkuð gott og er ég þakklát fyrir það. Á marga góða vini og góða fjölskyldu svo að eitthvað sé nefnt. Er búin að plana nokkurn vegin þetta ár eða svona part og part af því... Ég vona að það gangi allt saman eftir.Varð pínu döpur þegar ég var að taka niður jólin og öllu því sem því fylgir. Fannst allt svo tómlegt og dimmt. Sit hér nú með kertaljós og ákvað loks að reyna að blogga svolítið. Eins og ég hef áður sagt þá verð ég voðalega sjaldan kjaftstopp en einhvernvegin hefur það verið mér erfitt að blogga síðustu misseri og það verður bara að hafa það. Með hækkandi sól verður hærra á manni risið og eflaust eitthvað sem maður verður tilbúin að deila með öðrum hér inni..:O)Hér fyrir neðan eru myndir frá afmæli Hindarinnar minnar sem varð 11 ára og svo nokkrar sem voru teknar af mér og vinum á grímuballi eða öllu heldur áður en við fórum. Þær sem voru teknar á ballinu sjálfu eru ekki birtingarhæfar..:).. Stutt er í mína árlegu depurð ..Finn að hún nálgast og ætla að reyna af öllum mætti að reyna að koma í veg fyrir hana.Vonum bara að þessir leiðindarmánuðir verði fljótir að líða. Ekkert verður farið á þorrablót þetta árið hvorki hér í Eyjum né austur á land. En ég stefni á að fara á næsta blót á Seyðis ég get þá allavega farið að láta mér hlakka til þess..:)... Er líka búin að ákveða að fara á sjómannadaginn og halda hann hátíðalegann á Seyðisfirði. Gúa mín bestust ætlar að mæta með mér þangað og þá verður ýmislegt brallað ef ég þekki okkur rétt... En látum þessu lokið í bili. læt hér fylgja lítið kvæði sem mér finnst svo satt... Góða nótt.


~~**~~


Þó lífsins lán og gæði

leiki ei öll í höndum mér,

þó ekkert góss ég græði

glöð og ánægð samt ég er

ég hef heilsu föt og fóður......

og fæ að lifa vinum hjá,

skyldi ég ekki guð minn góður,

glöð og ánægð vera þá


~~**~~


Afmælisbörnin myndarlegu

fína kakan sem við gerðum...


farið á 900 grillhús að borða pizzu...



kakan fína..


V.H.G.. 11 ára


afmælisbarnið!!!



sætustin mín hjá kökunni!!!


Þetta er flottasti Elfar Franz sem fannst nú eiginlega kexið best í áramótapartíinu!!!:..:O) algjös snillingur þessi drengur!!!


Við Elísabet í þungarokksfýling á áramótunum....)



hehehe,,, Víðir og Annika að ..æææ ég veit það ekki allavega ekkert flott pósið hjá þeim...:O)


Ég og Anna Lilja Sig. á leið á grímuball!!


Hún sem Grease pía og ég sem saloonhooker...:O)


hmmmmmmmm



helv...flott bara...:)



ready to go!!!